Jóhannes S. Kjarval - Essens

Jóhannes S. Kjarval - Essens

Jóhannes S. Kjarval - Essens

Kjarvalsstaðir

-

Þann 15. október 2005 eru liðin 120 frá því að Jóhannes Sveinsson fæddist að Efri-Ey í Meðallandi. Af því tilefni er efnt til þessarar sýningar á verkum hans, þar sem val verka hverfist um tvö meginstef, eða essens, sem eru uppistaðan í lífsverki hans.

Annars vegar landið eins og það kemur honum fyrir sjónir í allri sinni fjölbreytni og hins vegar lífið í landinu, sem í verkum hans tekur á sig ólíkar birtingarmyndir hins raunverulega og hins skynjaða, þess sem hugurinn nemur, ekki síður en þess sem augað sér.

Titill sýningarinnar er fenginn frá listamanninum sjálfum, en í ársbyrjun 1925 gaf hann út tvö tölublöð af riti sem hann nefndi Árdegisblað listamanna, þar sem hann talaði um Essensism, þann kjarna lífsins og tilverunnar, sem væri að finna í listinni, og allir ættu að leita eftir.

Sýningin fyllir allt sýningarrými Kjarvalsstaða og er ætlað að birta nýja sýn á verk hins mæta listamanns. Við þessi tímamót mun Nesútgáfan gefa út veglega bók um ævi og störf Kjarvals sem rituð er af ýmsum innlendum og erlendum fræðimönnum..

Myndir af sýningu