Íslensk hönnun 2009 - Húsgögn, vöru­hönnun og arki­tektúr

Íslensk hönnun 2009 - Húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr

Íslensk hönnun 2009 - Húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr

Kjarvalsstaðir

-

Sýningin er unnin í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands og er ætlað að kynna brot af því besta sem er að gerast í íslenskri hönnun í dag með áherslu á húsgagna- og vöruhönnun og arkitektúr í víðum skilningi. Unnið er með tengsl þriggja hönnunargreina sem eiga stóran þátt í því að móta manngert umhverfi með samspili sín á milli. Leikið er með samhengi þeirra og hvernig þær eru samofnar mannlegri hegðun allt frá því að eiga þátt í að skipuleggja tímann, væta kverkarnar eða verja okkur fyrir náttúruhamförum.

Sýnd eru húsgögn og nytjahlutir og valin dæmi úr íslenskum samtíma arkitektúr.

Á sýningunni eru verk frá yfir 20 hönnuðum. Þau eru valin með það í huga að eiga erindi ytra til frekari kynningar, sölu eða framleiðslu. Eins með það fyrir augum að koma íslenskri hönnun og hugviti frekar á framfæri ímynd Íslands til góðs. Markmið sýningarinnar er að kynna á skýran og upplýsandi hátt íslenska hönnun eins og hún gerist best hvað varðar fagurfræði, formskilning, framleiðslu og heildarhönnun. Ætlunin er að sýna að hér sé full alvara á ferð í bæði hönnun og hugviti sem virkja má áfram til framtíðar.

Að íslensk hönnun einkennist af alvöru og skynsemi, þar sem góðar framsæknar hugmyndir eru unnar til enda á vandaðan hátt í anda hugsunarháttar sem vert er að setja á oddinn í dag.

Samhliða hönnunarsýningunni er kynning á ,,vaxtarbroddum” þ.e. efnilegum hönnuðum sem eru að taka sín fyrstu skref. Valdir voru hönnuðir sem vakið hafa athygli og hönnun þeirra sýnd sérstaklega. Þetta er verkefni unnið í samvinnu við og fyrir tilstuðlan nýstofnaðs Hönnunarsjóðs Auroru. Sýningin er samstarfsverkefni Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Listasafns Reykjavíkur og er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Umfjöllun fjölmiðla PDF

Sýningarstjóri/-ar

Elísabet V. Ingvarsdóttir

Umfjöllun fjölmiðla

Listamenn