Í hlut­arins eðli – skissa að íslenskri samtíma­lista­sögu [1.0]

Hreinn Friðfinnsson, Composition, 2016.

Í hlutarins eðli – skissa að íslenskri samtímalistasögu [1.0]

Hafnarhús

-

Efnisheimurinn er viðfangsefni nokkurra valinna verka úr safneign Listasafns Reykjavíkur. Náttúrufyrirbæri, manngerðir hlutir og ýmisskonar efni liggja til grundvallar með tilliti til eiginleika, eðlis, merkingar og gildis. Sýningin er hluti nokkurs konar skissuvinnu Listasafns Reykjavíkur að íslenskri samtímalistasögu.

Hugmyndin er að safnið haldi áfram að velja verk úr safneigninni og setja í samhengi tilraunar til að skrifa listasöguna jafnóðum. Við innkaup listaverka í safnið á sér stað visst val sem endurspeglar fjölbreytileika listsköpunar hverju sinni en hér er reynt að greina enn frekar þær sameiginlegu áherslur sem er að finna í deiglu samtímans. Hvað einkennir íslenska myndlist á 21. öld?
Hver eru viðfangsefni listamanna, aðferðir, efni og áskoranir?.

Myndir af sýningu