Haraldur Jóns­son: Róf

Haraldur Jónsson: Róf

Haraldur Jónsson: Róf

Kjarvalsstaðir

-

Yfirlitssýning á verkum Haraldar Jónssonar, Róf, dregur fram sérstöðu listamannsins í íslensku listalífi. Ferill hans er fjölbreyttur og miðlarnir ólíkir en rauði þráðurinn er tilraun til þess að eima tilveruna. Í þrjá áratugi hefur Haraldur skoðað hvernig við greinum umhverfi okkar, vinnum úr upplifun, tjáum okkur og eigum í samskiptum hvert við annað.

Hver eru tengsl manns og rýmis, vitundar og umhverfis? 

Haraldur Jónsson er fæddur árið 1961 í Finnlandi. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1984-87, við Listaakademíuna í Düsseldorf í Þýskalandi 1987-90 og var Meisterschüler árið 1990. Verk Haraldar hafa verið sýnd á öllum helstu sýningarstöðum hér á landi en einnig alþjóðlega.

Sýningin Róf teygir anga sína út fyrir sýningarsalinn, út í forsal Kjarvalsstaða, á Flókagötu, Klambratún og víðar. Sýningin er hluti af því markmiði Listasafns Reykjavíkur að rannsaka og kynna feril mikilsverðra starfandi listamanna og er sýningunni fylgt eftir með ítarlegri sýningarskrá. Sýningarstjóri og ritstjóri sýningarskrár er Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur. 

Fylgist með verki listamannsins Instagrams (2015-) á #haraldur8525.

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun