Hafsteinn Aust­mann

Hafsteinn Austmann

Hafsteinn Austmann

Kjarvalsstaðir

-

66 vatnslita-, olíu- og akrýlverk frá árunum 1954-1984. Hafsteinn hefur hin síðari ár jöfnum höndum unnið með vatnslitum, akrýllitum og olíulitum. Hann hefur frá sínum fyrstu kynnum af afstraktlistinni haldið tryggð við hana, hann hleypur ekki úr einum stíl í annan, en miklar framfarir hafa átt sér stað í myndlist hans og litameðferðin er hans sterka einkenni.

Hafsteinn fer sér hægt og vinnur vel úr efniviðnum og ræður nú yfir meiri tækni en flestir okkar afstraktmálarar. Hafsteinn er í stöðugri framþróun. Hann trúir á eigin list..