Frá Unuhúsi til áttunda strætis

Frá Unuhúsi til áttunda strætis

Frá Unuhúsi til áttunda strætis

Kjarvalsstaðir

-

Um miðja síðustu öld stunduðu íslensku myndlistarkonurnar Louisa Matthíasdóttir (1917–2000 ) og Nína Tryggvadóttir (1913–1968) nám hjá Hans Hofmann (1880–1966), þýskum málara sem varð einn helsti boðberi módernismans. Hofmann rak listaskóla sinn að West Eight Street, New York, en áður en Louisa og Nína héldu vestur um haf voru þær fastagestir í Unuhúsi, litlu rauðu húsi í Garðastræti, sem jafnan var skipað kunnum skáldum, rithöfundum og myndlistarmönnum.

Á sýningunni eru verk Louisu og Nínu í forgrunni og hafa flest þeirra ekki verið sýnd hérlendis áður. Á sjötta tug olíuverka eru á sýningunni eftir Hofmann og nemendur hans þau Nell Blaine (1922–1996), Jane Freilicher (1924) og Robert De Niro eldri (1922–1993) sem öll eru velþekkt í bandarísku listalífi.

Verkin voru fengin að láni úr bandarískum einkasöfnum fyrir tilstilli Tibor de Nagy Gallery og Amaringer Yohe Fine Arts..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun