Bryn­hildur Þorgeirs­dóttir: Mynd­heimur

Brynhildur Þorgeirsdóttir: Myndheimur

Brynhildur Þorgeirsdóttir: Myndheimur

Hafnarhús

-

Einkasýning Brynhildar Þorgeirsdóttur. Gríðarstór landslagsinnsetning sem teygir anga sína úr salnum á fyrstu hæð og út í port. Brynhildur Þorgeirsdóttir er sjálfri sér samkvæm í lífi sínu og list; verk hennar hafa frá fyrstu tíð verið auðþekkjanleg fyrir persónulegan stíl, sem einkennist öðru fremur af sterkri efniskennd og tilvísunum í náttúruna í verkum hennar. Þó notar hún sjaldnast náttúruleg form í höggmyndum sínum; þau eru fremur stílfærð, skáldleg og ögrun við augu þess sem skoðar þau, en þó um leið afar persónuleg tjáning á sýn listakonunnar.

Brynhildur er þekkt fyrir notkun sína á steinsteypu, gleri og málmi í verkum sínum sem annað tveggja rísa sem klettar eða fjöll úr umhverfi sínu, eða bíða gestsins sem óvænt óargadýr, með hvassa brodda og spenntar kryppur; líkt og spenntir bogar sem geta leyst kraft sinn úr læðingi hvenær sem er. Það er enga málamiðlun að finna í listsköpun Brynhildar.

Ef henni þykir viðfangsefnið kalla á miklar stærðir og efnisumfang, þá finnur hún einfaldlega leiðir til framkvæma hugmyndir sínar.

Á sýningu hennar í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi fá gestir að kynnast myndheimi sem svo sannarlega rís undir nafni; heill fjallgarður sem teygir sig upp í svartan himinn, myrkraverur skríða í átt til ljóssins í porti Hafnarhússins þar sem hvítur tindur hefur sprottið upp úr ljósri steypunni. Það er líkt og náttúruöflin hafi tekið völdin. Sá frumkraftur sem einkennir íslenska náttúru, sem og túlkun listakonunnar á þeim öflum sem móta okkur öll með beinum og óbeinum hætti, er eftirminnileg ábending um þá orku, sem einnig felst í listinni í sinni sönnustu mynd..

Myndir af sýningu