Ásmundur Sveinsson - Meist­ara­hendur

Ásmundur Sveinsson - Meistarahendur

Ásmundur Sveinsson - Meistarahendur

Ásmundarsafn

-

Á sýningunni gefur að líta verk sem spanna feril listamannsins og sýna vel þróunina sem varð á sýn hans í gegnum tíðina. Meðal verka er sveinstykki Ásmundar Sveinssonar og höggmyndir sem hann gerði sem nemandi við sænsku ríkisakademíið. Síðar komu stórbrotin meistaraverk sem lofsyngja íslenska alþýðu, sagnir og náttúru og loks er í safninu fjöldi abstraktverka sem listamaðurinn vann á síðustu áratugum ævi sinnar.

Ásmundur Sveinsson var á meðal frumkvöðla íslenskrar höggmyndalistar og sótti innblástur fyrst og fremst í íslenska náttúru og bókmenntir, sem og til þjóðarinnar.

Efnismikil, kröftug og stundum ógnandi verk hans eru lík þeim kynjamyndum sem oft má lesa úr íslenskri náttúru. En þó myndefni Ásmundar hafi fyrst og fremst verið af þjóðlegum toga, tileinkaði hann sér engu að síður meginstrauma alþjóðlegrar listsköpunar eins og ekkert stæði honum nær og gaf henni um leið íslenskt yfirbragð - íslenskt inntak..

Myndir af sýningu

Myndir frá opnun

Ítarefni

Listamenn

Boðskort