Fréttir / tilkynningar
Hugleikir og fingraflakk með Jóni Proppé, sunnudag 13. janúar kl. 15

Listheimspekingurinn, Jón Proppé ræðir við gesti um merkan feril Ragnheiðar Jónsdóttur en yfirlitssýning á verkum hennar stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum. Yfirskrift sýningarinnar er Hugleikir og fingraflakk - Stiklur úr starfsævi Ragnheiðar Jónsdóttur og spannar rúmlega fjörutíu ára feril listamannsins.
Ragnheiður hóf feril sinn sem listmálari en varð síðar meðal frumherja í flokki þeirra sem settu grafíklistina í öndvegi í íslenskum listheimi á 8. og 9. áratug síðustu aldar. Túlkun hennar á hversdagleikanum varð að táknmyndum samtímans, einkum á sviði kvennabaráttu og umræðu um sjálfsvitund einstaklingsins. Ragnheiður tók um 1990 að hverfa á vit teikningarinnar í listsköpun sinni, þar sem frjálslegt línuspil á stórum myndflötum skapar fjölbreytt mynstur og flæði. Frá þeim tíma hafa teikningarnar verið kjarninn í myndheimi Ragnheiðar.
Frítt er fyrir handhafa menningarkortsins en nánari upplýsingar má finna á www.listasafnreykjavikur.is/heimsokn, allir velkomnir.
Prenta Til baka