Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Menningarverðlaun DV fyrir D-salinn

Menningarverðlaun DV

D-SALUR
D-salar verkefnið er sameiginlegt verkefni starfsfólks Listasafns Reykjavíkur sem velur listamenn og stýrir uppsetningum, en aðalstjórnandi verkefnisins er Yean Fee Quay, deildarstjóri sýningardeildar.

Forsögu sýningaraðarinnar má rekja til haustsins 2006 þegar Listasafn Reykjavíkur efndi til stórrar sýningar í Hafnarhúsinu þar sem ný kynslóð listamanna var kynnt til leiks. Pakkhús postulanna, eins og sýningin var kölluð, færði nýtt blóð inn í safnið. Hún þótti sýna og sanna hversu listamenn eru megnugir ef þeim er boðinn faglegur stuðningur og aðstaða. Full ástæða þótti til að fylgja framtakinu eftir.

Í ársbyrjun 2007 kynnti Listasafn Reykjavíkur því nýja sýningaröð þar sem efnilegum listamönnum var gefið tækifæri til að taka næsta skref í ferli sínum með einkasýningu í safninu. Sérstakur salur í Hafnarhúsinu, salur D, var helgaður verkefninu og er sýningaröðin einfaldlega kennd við hann.

Samhliða því að gera listamönnum, sem standa á tímamótum í listsköpun sinni fært að koma hugmyndum sínum í framkvæmd, er D-salar röðinni ætlað að vekja athygli á efnilegum listamönnum landsins. Þótt margir eða allir þátttakenda hafi sýnt í grasrótasölum borgarinnar og verið þekktir á meðal innvígðra í listaheiminum hefur enginn þeirra sýnt áður í stærri söfnum landsins. Þessu framtaki hefur verið vel tekið. Sá fjölbreytti hópur sem sækir safnið hefur sýnt sýningunum áhuga og gert sér far um að kynnast verkum og hugmyndum listamannanna.

Sýningaröð D-salarins er fylgt úr hlaði með sýningarskrám þar sem átta sýningar eru kynntar í senn. Fyrsta sýningarskráin leit dagsins ljós árið 2008 og sú næsta er þegar í undirbúningi.

Listamenn sem sýnt hafa í D-salnum eru í þessari röð: Birta Guðjónsdóttir, Geirþrúður Hjörvar, Sigurður Guðjónsson, Daníel Björnsson, Jóhannes Atli Hinriksson, Karlotta Blöndal, Ingirafn Steinarsson, Gunnhildur Hauksdóttir, Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Andrea Maack, Pétur Már Gunnarsson, Jeannette Castioni, Ingibjörg Birgisdóttir, Ryan Parteka, Dodda Maggý og Katrín Elvarsdóttir sem nú sýnir í salnum. Næstu listamenn til að sýna í D-salnum eru Hulda Rós Guðnadóttir og Bjarni Sigurbjörnsson. Sýningarstjórar eru Yean Fee Quay, sem hefur stýrt meginhluta sýninganna, en aðrir eru Hafþór Yngvason safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Ólöf K. Sigurðardóttir og Þorbjörg Br. Gunnarsdóttir.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 22:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00-16:00